25 júl. 2013Í dag leika A-landslið og U22-ára landslið karla, Íslands og Danmerkur, sitthvorn landsleikinn. Leikið verður í Ásgarði, Garðabæ. U22-ára liðin mætast kl. 17.00 og A-landsliðin kl. 19.15. Aðganseyrir er 1.500 kr. fyrir báða leikina fyrir 16 ára og eldri. Á morgun leika svo A-landsliðin í Keflavík á sama tíma og U22-ára liðin kl. 12.30 í Ásgarði á Laugardaginn. Á A-landsliðsleikinn, á morgun föstudag, kostar 1.500 kr. en aðgangur verður ókeypis á laugardeginum. U22-ára lið Íslands: 4 Tómas Heiðar Tómasson - Þór Þorlákshöfn 5 Björgvin Hafþór Ríkharðsson - Fjölnir 6 Valur Orri Valsson - Keflavík 7 Ágúst Orrason - Njarðvík 8 Þorgrímur Kári Emilsson - ÍR 9 Haukur Óskarsson - Haukar 10 Elvar Már Friðriksson - Njarðvík 11 Snorri Hrafnkelsson - Keflavík 12 Kristófer Acox - KR / Furman College (USA) 13 Maciej Baginski - Njarðvík 14 Stefán Karel Torfason - Snæfell 15 Martin Hermannsson - KR Þjálfari: Einar Árni Jóhannsson Aðstoðarþjálfari: Pálmi Þór Sævarsson