23 júl. 2013
A-landslið karla er nýkomið heim frá Kína eftir að hafa lent í 2.sæti á 4-landa móti. Núna á fimmtudag og föstudag keppir liðið æfingaleiki við Dani, fyrri leikurinn er í Ásgarði á fimmtdag og seinni leikurinn í Keflavík á föstudag. Þetta eru það síðustu æfingaleikir liðsis fyrir undankeppni Evrópukeppninnar sem hefst í byrjun ágúst en leikið er um eitt sæti á EuroBasket 2015 í Ukraínu. Ísland er í riðli með Rúmeníu og Búlgaríu. U-22 ára lið karla spilar einnig tvo æfingaleiki við Dani og fara báðir leikirnir fram í Ásgarði í Garðabæ. Fyrri leikurinn er á fimmtudag og seinni leikurinn er á laugardag. Æfingaleikir við Dani 25., 26., og 27. júlí: 25. júlí · Ásgarður 17:00 Ísland – Danmörk U22 ára lið þjóðanna 19:15 Ísland – Danmörk A-landslið þjóðanna 26. júlí · Keflavík 19:15 Ísland – Danmörk A-landslið þjóðanna 27. júlí · Ásgarður 12:30 Ísland – Danmörk U22 ára lið þjóðanna