20 júl. 2013
Annar leikur A-landsliðs karla á 4-landa æfingamóti í Kína verður núna kl.9.30 eða 17.30 að kínverskum tíma. Í dag eru það Svartfelligar sem eru mótherjar okkar drengja. Svartfjalland vann Makedóníu í gær á þessu móti 82-77. Okkar drengir töpuðu í gær fyrir Kína 48-60 en Kínverjar eru ríkjandi Asíumeistarar. Svartfjallaland var í riðli með Íslandi í fyrra í undankeppni EuroBasket 2013 og vann Svartfjalland alla sína 10 leiki í riðlinum og er að undurbúa sig fyrir lokamót EuroBasket sem hefst í Slóveníu í lok ágúst. Stefnt er að því að senda upplýsingar og myndir heim á [v+]https://www.facebook.com/kki.islands [v-]facebook-síðu KKÍ[slod-] á meðan leik stendur.