27 ágú. 2012
Í kvöld er komið að þriðja heimaleiknum hjá íslenska liðinu og í kvöld verða það Eistar sem koma í heimsókn í Laugardalshöllina. Leikurinn hefst kl. 19.15. KKÍ hvetur alla áhugasama til að mæta í Höllina, styðja við bakið á íslenska liðinu og njóta þess að sjá skemmtilegan körfuknattleik í undankeppni EuroBasket 2013.