9 ágú. 2012Síðar í dag er komið að frumraun U18 ára liðsins í Evrópukeppni landsliða sem fram fer í Bosníu. Tímamismunurinn er -2 tímar þannig að leikurinn sem hefst kl. 18 ytra er kl. 16.00 hér heima á íslenskum tíma. Á vefsíðunni [v+]http://u18men.fibaeurope.com/enDivB/default.asp [v-]u18men.fibaeurope.com[slod-] er hægt að skoða allt um mótið eins og úrslit, leikjadagskrá og sjá myndir. Búið er að setja glugga á vef KKÍ.is með lifandi tölfræði þar sem hægt er að nálgast beinar lýsingar frá leikjum í okkar riðli. Áfram Ísland!