1 jún. 2011Í morgun hélt stór hópur frá Íslandi á Norðurlandamótið sem fram fer í Solna í Svíþjóð dagana 1. - 5. júní nk. Það var stór hópur sem flaug með Iceland Express frá Íslandi í morgun en um 110-120 leikmenn, þjálfarar, fararstjórar, dómarar, sjúkraþjálfarar og fjölmennur hópur foreldra eru með í för. Til að halda kostnaði niðri ákvað Iceland Express að fljúga þessum myndarlega hópi beint til Stokkhólms. Þetta er 9. árið sem mótið fer fram með þessum hætti. Það eru U-16 ára og U-18 ára landslið karla og kvenna sem taka þátt. Ísland sendir lið í öllum aldursflokkum. Upplýsingar um liðsskipan landsliðanna og hópmyndir af liðunum má finna í eftirtöldum hlekkjum: [v+]http://www.kki.is/frettir.asp?adgerd=ein&id=6901[v-]U-16 ára lið kvenna[slod-] [v+]http://www.kki.is/frettir.asp?adgerd=ein&id=6905[v-]U-18 ára lið kvenna[slod-] [v+]http://www.kki.is/frettir.asp?adgerd=ein&id=6902[v-]U-16 ára lið karla[slod-] [v+]http://www.kki.is/frettir.asp?adgerd=ein&id=6906[v-]U-18 ára lið karla[slod-] Dómarar frá Íslandi eru: Sigmundur Már Herbertsson Davíð Hreiðarsson Davíð Tómasson Jakob Árni Ísleifsson Kristinn Óskarsson - FIBA Instructor Aðalfararstjóri er Anna María Sveinsdóttir S: 892 3034 Stefán Þór Borgþórsson mótastjóri KKÍ verður einnig með í ferðinni og mun skrifa fréttir og taka myndir. Hægt er að hafa samband við hann ef þið viljið fá myndir og eða aðrar upplýsingar. S: 697-3960 [v+]http://iof1.idrottonline.se/SvenskaBasketbollforbundet/Landslag/Ungdomslandslag/NordiskaMasterskapen[v-]Slóð á mótið[slod-] Einnig verður fréttaflutningur á heimasíðu sambandsins [v+]http://kki.is/[v-]kki.is[slod-]