28 apr. 2011
Mario Blasone kemur til Íslands og heldur hér þjálfaranámskeið fyrir þjálfara á öllum stigum dagana 12. - 15. maí. Þeir sem skrá sig fyrir 1. maí fá námskeiðið á frábærum kjörum eða á 2.500 kr. en eftir það mun það kosta 5.500 kr. Hægt er að skrá sig með því að senda póst á [p+]kki@kki.is[p-]kki@kki.is[slod-]. Gengið verður frá greiðslum á námskeiðinu. Námskeiðið verður á Reykjavíkursvæðinu og skýrist á allra næstu dögum. Hér að neðan má sjá tímasetningar á námskeiðinu. Fimmtudagur 12. maí 18:00-21:00 Föstudagur 13. maí 18:00-21:00 Laugardagur 14. maí 10:00-12:30 og 13:30-16:00 Sunnudagur 15. maí 10:00-12:30 og 13.30-16:00 Ekki láta þetta veglega þjálfaranámskeið framhjá ykkur fara.