19 nóv. 2010
KKÍ hefur sett af stað kosningu hér á síðunni þar sem notendur kki.is og aðdáendur íslensk körfubolta geta valið í byrjunarliðin tvö í Stjörnuleiknum sem fram fer 11. desember í Seljaskóla. Þú getur valið þá leikmenn sem þú vilt sjá byrja inn á vellinum úr leikmannahóp Iceland Express-deildarinnar. Búið er að skipta liðunum í tvö lið, Höfuðborgarsvæðið gegn Landsbyggðinni, og leikmönnum á þrjá lista eftir því hvaða leikstöður þeir spila. Lið Höfuðborgarsvæðisins skipa: Fjölnir, Haukar, ÍR, KR og Stjarnan. Lið Landsbyggðarinnar skipa: Grindavík, Hamar, Keflavík, KFÍ, Njarðvík, Snæfell og Tindastóll. [v+]http://kki.is/kosning.asp [v-]Kosningaformið er að finna hérna[slod-] Munið að kjósa í bæði lið, aðeins er hægt að kjósa einu sinni á hverri tölvu. Nánari viðburðir tengdir deginum verða svo tilkynntir þegar nær dregur en auk hefbundinna atriða verður ný uppákoma kynnt til sögunnar.