12 sep. 2010Úrslitaleikur HM fór fram í Istanbúl fyrr í kvöld. Bandaríkin náðu undirtökunum í lok fyrsta leikhlutans þegar Durant varði sniðskot Tyrkja í hraðaupphlaupi og Bandaríkin náðu að skora þriggjastigakörfu í næstu sókn. Staðan 17:22 fyrir Bandaríkin eftir fyrstu 10 mínútur leiksins. Bandaríska liðið sýndi frábæra varnartakta sem héldu Tyrkjum frá sínum eðlilega leik og staðan var 32:42 á hálfleik. Í upphafi síðarhálfleiks komu leikmenn bandaríska liðsins rétt stemmdir til leiks og byrjuðu með látum, Kevin Durant setti niður tvo þrista strax í upphafi seinni hálfleiks á meðan Tyrkir voru í vandræðum í sóknarleiknum og að skora. og náðu 18 stiga forskoti. Staðan var 48:61 eftir þrjá leikhluta. Í fjórða leikhluta var aldrei spurning hver myndi fara með sigur af hólmi en Bandarískaliðið lék á alls oddi og sýndu frábær tilþrif á öllum sviðum leiksins. Lokatölur 64:81 og Bandaríkin Heimsmeistarar 2010, í fyrsta sinn í 16 ár. Durant var með 28 stig, Lamar Odon með 15 stig og 11 fráköst. Mike Krzyzewski bætti enn einni rós í hnappagatið en hann er núverandi Ólympíumeistari, Heimsmeistari og lið hans Duke eru NCAA meistarar í háskólaboltanum. Bandaríkin tóku þar með forskot í fjölda heimsmeistaratitla að auki en Bandaríkin hafa unnið 4 titla og eru á undan hinum sálugu Sovétríkjum og fyrrum Júgóslavíu. Úrvalslið HM 2010 er eftirfarandi Hedo Turkoglo · Tyrklandi Kevin Durant · Bandaríkjunum Linas Kleiza · Litháen Luis Scola · Argentínu Mios Teodosic · Serbíu Verðmætasti leikmaðurinn eða MVP var kjörin Kevin Durant en hann var með 28 stig í úrslitaleiknum og hefur leikið frábærlega í keppninni. Leiðtogar tölfræðiþátta Stigahæsti leikmaðurinn var hinn Argentínski Luis Scola með 27.1 stig að meðaltali í leik. Jianlian Yi leiddi í flestum fráköstum með 10.1 í leik og Pablo Prigiani var með 6.4 stoðsendingar í leik. Litháen sigraði Serbíu í leiknum um þriðja sætið 99:88 fyrr í dag og Argentína sigraði Spán í leiknum um 5. sætðið. Lokastaðan varð því þannig: 1. Bandaríkin (sæti á ÓL 2012 í London) 2. Tyrkland 3. Litháen 4. Serbía 5. Argentína 6. Spánn 7. Rússland 8. Slóvenía