18 jún. 2010Los Angeles Lakers tryggði sér NBA meistaratitilinn í 16. skipti með sigri á Boston Celtics í hreinum úrslitaleik. Lokatölur voru [v+]http://www.nba.com/games/20100617/BOSLAL/gameinfo.html?ls=gt2hp0040900407#nbaGIboxscore[v-]83:79[slod-] Boston hefur unnið titilinn 17 sinnum. Kobe Bryant var valinn verðmætasti leikmaður úrslitanna eins og 2009 og var þetta 5. meistaratitill Kobe. Phil Jackson var að vinna sinn 11. meistaratitil sem er met á meðal þjálfara í deildinni. Sex af titlunum voru með Chicago Bulls.