15 maí 2010Nú er farið að síga á seinnihlutann á Norðurlandamótinu í ár. U18 kvenna hafa lokið keppni og á morgun ræðst hvaða lið leika á sunnudeginum í úrslitum. Hin liðin okkar þrjú leika sína síðustu leiki í riðlakeppninni í dag, U16 drengja og stúlkna og U18 karla. Dagskrá dagsins: ( íslenskur tími ) kl. 11.00 · U18 karla keppir við Finnland kl. 11.00 · U16 drengja keppir við Danmörku kl. 17.00 · U16 stúlkna keppir við Finnland Verðlaunasaga Íslands á NM: Norðurlandamótið hefur nú verið haldið í Solna í nokkur ár. Síðan það hefur verið spilað í núverandi mynd hefur Ísland unnið sex gullverðlaun á Norðurlandamótinu, fimm silfur og þrjú brons. Níu sinnum höfum við lent í 4. sæti og tvisvar sinnum í því fimmta. U18 karla hefur þrisvar unnið NM, unnu síðast í fyrra og eru því núverandi meistarar, U16 drengja tvívegis og U16 kvenna einu sinni.