9 des. 2009Eins og fram hefur komið þá fer fram áhugaverður leikur á milli Stjörnuleikja kvenna og karla næsta laugardag. Úrval eldri landsliðsmanna mun etja kappi við þekkta einstaklinga sem á einhverjum tímapunkti ferils síns stunduðu körfubolta en eru þekktir fyrir annað í dag. Óhætt er að segja að um verulega sterkt lið er að ræða og þurfa fyrrverandi landsliðsmenn að hafa sig alla fram til að hafa sigur. Kynning á "Celeb" liðinu: Leikstjórnandi · Hilmir Snær Guðnason Hilmir Snær er landsþekktur leikari sem hefur leikið fjölmörg hlutverk í kvikmyndum, sjónvarpi og á sviði undanfarin ár. Hilmir lék körfu á árum áður með ÍR. Skotbakvörður · Auðunn Blöndal Auðun Blöndal grínara þekkir hvert mannsbarn en Auðunn, sem er frá Sauðárkróki, lék að sjálfsögðu með Tindastól hér áður fyrr og kann því sitt hvað fyrir sér í körfu. Léttur Framvörður · Sverrir Bergmann Tónlistarmaður og umsjónarmaður Game-TÍVÍ er einnig frá Sauðárkróki og leikur með 2. deildar liði Smárans frá Varmahlíð sem skipað er eingöngu gömlum Skagfirðingum. Fleiri stjörnur verða kynntar síðar....