9 nóv. 2009Svarið við spurningunni er að allir vinna þeir eftir sömu þjálfunarhugmyndafræðinni og þetta á við þjálfara mun fleiri liða úti í heimi. Hugmyndafræðinni sem gengur út á að draga markvisst úr meiðslum íþróttamanna og auka árangur. Við viljum bjóða þér, kæri þjálfari, að fá að sjá og heyra hvernig hugmyndafræðin virkar í praxis, þriðjudaginn 10. nóvember klukkan 12.10-12.50 í íþróttamiðstöðinni í Laugardal. Við munum sýna hvernig afreksíþróttamaður er greindur og mældur á vísindalegan og hagnýtan hátt með það að markmiði að finna út hvort og hvaða veikleika hann kunni að hafa. Veikleika sem hamli árangur hans í íþróttagreininni og auki mjög á meiðslahættu. Þá ætlum við einnig að leggja upp með æfingaáætlun fyrir íþróttamanninn með það að markmiði að lagfæra veikleika hans, gera hann sterkari, fljótari, liðugari og úthaldsbetri. Þetta er það sem nýja námskeiðið okkar, ÍAK íþróttaþjálfari, gengur út á; að styrktar- og ástandsþjálfa íþróttamanninn sjálfan innan íþróttagreinarinnar á markvissan hátt. Við verðum í húsnæði ÍSÍ í íþróttamiðstöðinni í Laugardalnum, E-sal. Allir sem hafa metnað fyrir þjálfun munu hafa gagn og gaman af. Léttar hádegisveitingar verða í boði og þeir sem ætla að mæta tilkynni það með því að senda [p+]gunnhildur@keilir.net[p-]póst[slod-] á Gunnhildi hjá Keili. Ef þú vilt kynna þér ÍAK íþróttaþjálfarann betur áður en þú kemur þá geturðu lesið þig til [v+]http://www.keilir.net/namid/heilsa-og-uppeldi/iak-ithrottathjalfari/[v-]hér[slod-].