8 okt. 2009Laugardaginn 10. október verður körfuboltaskemmtun í Vetrargarðinum í Smáralind. Þar verður gestum gefinn kostur á að spreyta sig í skotleikjum og ýmsum þrautum. Verðlaun verða í boði fyrir leiki og þrautir. Dagskrá verður frá 13:00-17:00. M.a. sem verður keppt í, er Íslandsmót í Fingraspuna en sú keppni hefst klukkan 14:00 Fingraspuni er íslenskt orð yfir " fingerspinning " en það gengur út á að halda knetti á fingri/um með því að snúa honum og halda honum þannig eins lengi og hægt er. Sá sem nær að halda knettinum lengst verður krýndur sem Íslandsmeistari í Fingraspuna. Sigurvegarinn hlýtur bikar og inneign frá Iceland Express í verðlaun. Það er öllum frjálst að taka þátt í þessum leik og þeir sem vilja mæta með sína eigin bolta er frjálst að gera það. Hægt er að nálgast sýnikennslu í Fingraspuna [v+]http://www.ehow.com/video_4971512_spin-basketball-finger.html[v-]hér[slod-] Meistarakeppni KKÍ 2009 þar sem íslandsmeistarar og Bikarmeistarar frá fyrra ári mætast fer fram í DHL Höllinni sunnudaginn 11. október og er um að ræða styrktarleik eins og undanfarin 15 ár. Neistinn, styrktarfélag hjartveikra barna fær allan aðgangseyri og það sem safnast í kringum leikina að þessu sinni. Leikmenn liðanna sem taka þátt í Meistarakeppninni á sunnudeginum verða í Smáralindinni ásamt fulltrúum frá Neistanum til að kynna leikina sem og starfsemi Neistans. Gestir fá tækifæri á að skora á leikmenn í skotkeppni.