20 apr. 2009Nú styttist í lokahóf KKÍ en það verður laugardaginn 2. maí á Broadway. Nú er orðið ljóst að Land og synir munu sjá um stemninguna og fjörið fram eftir nóttu og hefur Hreimur lofað dúndurstuði enda ekki annað hægt þegar körfuknattleiksfólk kemur saman. Opnað verður fyrir miðapantanir seinna í dag eða morgun og verður sagt frá því bæði hér á síðunni sem og með tölvupósti til forráðamanna og þjálfara félaganna.