15 apr. 2009Lokahóf KKÍ verður haldið á Broadway eins og í fyrra laugardaginn 2. maí. Í fyrra var metaðsókn í mat þegar um 370 mættu. Markmiðið í ár er að rjúfa 400 manna múrinn í mat og fá svo ennfleiri til að mæta á dansleikinn sem hefst upp úr miðnætti. Simmi og Jói munu sjá um veislustjórn og má búast við að nokkrir velvaldir brandarar eigi eftir að fjúka áður en nóttin verðu öll. Á næstu dögum koma fleiri upplýsingar um lokahófið.