18 mar. 2009Á leik Njarðvíkur og Keflavíkur má með sanni segja að Helgi nokkur Arason frá Keflavík hafi slegið í gegn. Kappinn mætti í appelsínugulum spandex galla með hlýra á leikinn og var með það sama boðið upp á Borgarskot Iceland Express. Eitthvað var hlýrinn að angra hann svo hann smeygði honum fimlega niður og þá var ekki að spyrja að því, skot frá miðju fór beint ofan í körfuna við mikinn fögnuð áhorfenda. Fyrir þetta skot fær Helgi ferð fyrir 2 til einhvers af áfangastöðum Iceland Express.