11 feb. 2009Þó enn sé talsvert í lokahóf KKÍ þá er ekki úr vegi að minna á dagsetninguna svo fólk geti fært hana til bókar. Lokahófið verður á Broadway laugardaginn 2. maí og er markmiðið að rjúfa 400 gesta múrinn í matnum. Hópurinn hefur farið sístækkandi síðustu ár og hefur verið mikil ánægja með síðustu hóf og stemningin eftir því. Á síðasta hófi sýndi formaðurinn fádæma danshæfileika í verðlaunaafhendingunni, hvað gerist í ár??? Á næstu vikum verða settar inn fréttir af því sem verður boðið upp á svo við skorum á ykkur að fylgjast vel með.