9 jan. 2009Leikur ÍR og KR í Iceland Express karla í kvöld er svokallaður „ Iceland Express " leikur þessarar umferðar en þá gefst áhorfendum kostur á því að vinna ferð fyrir tvo með Iceland Express. Leikur ÍR og KR er í Seljaskóla og hefst klukkan 19:15 Dregið verður úr miðum í hálfleik og þá kemur í ljós hver hreppir þennan glæsilega vinning.