5 jan. 2009Eins og fram hefur komið verður fyrri helmingur keppnistímabilsins í Iceland Express deildum karla og kvenna gerður upp á morgun. Hér að neðan má sjá hvað verður verðlaunað fyrir á morgun. Úrvalslið IEX deilda: 1. 2. 3. 4. 5. Besti leikmaður Besti þjálfari Besti dómari Dugnaðarforkur Að hámarki má vera einn erlendur leikmaður í hvoru úrvalsliði en það telst vera í hlutfalli við þann fjölda erlendra leikmanna sem eru í deildunum í ár. Það er sérstök nefnd sem velur leikmennina eins og í fyrra en besti dómarinn er valinn af öllum þjálfurum í Iceland Express deildum karla og kvenna.