7 maí 2008Eins og fram hefur komið verður lokahófið haldið á Broadway nk. laugardag 10. maí. Miðasala hefur gengið ágætlega en ennþá eiga einhver félög eftir að ganga frá sínum pöntunum. Lokahófið í fyrra tókst mjög vel þar sem fór saman skemmtileg dagskrá og góð mæting frá félögunum og er vonandi að það sama verði í ár. það er einvalalið sem mun sjá um að skemmta okkur eins og sést hér að neðan. Veislustjórn verður í höndum Gísla Einarssonar og hefur hann lofað því að halda vel utan um hlutina. Bryndís Ásmundsdóttir söng og leikkona mætir á svæðið og mun taka nokkur vel valin lög með Tinu Turner. Þeir sem hafa séð hana í þessu hlutverki segja að hún fari hreinlega á kostum. Verðlaunaafhendingar verða á sínum stað fyrir þá sem hafa skarað fram úr í Iceland Express deildum karla og kvenna og þá mun einnig verða kunngert valið á úrvalsliði 1.deildar karla ásamt besta þjálfara og leikmanni. Sálin Hans Jóns Míns mun svo stíga á svið um 00:30 og heldur uppi fjörinu fram á nótt. Er hægt að biðja um það mikið betra? Hægt er að ganga frá pöntunum og greiðslum [v+]http://www.broadway.is/page2.php?idl=42&idp=3[v-]hér[slod-]