28 apr. 2008Árið 2006 kom Gísli nokkur Einarsson sá og sigraði á lokahófi KKÍ. Gísli hafði látið á sér kræla í sjónvarpi og hafði vakið athygli sem þáttastjórnandi enda einstaklega orðheppinn maður. Það hafði ekki allt körfuboltafólk hugmynd um hvaða maður þetta var sem sté í pontu og ávarpaði hópinn en það tók Gísla ekki langan tíma að fá athygli og er skemmst frá því að segja að hann hafi farið á kostum. Gísli hefur tekið það að sér að stýra lokahófinu í ár sem kætir vafalaust marga. Lokahófið verður eins og komið hefur fram laugardaginn 10. maí.