15 apr. 2008Nú liggur það fyrir að ball ársins verður laugardaginn 10. maí þegar lokahóf KKÍ verður haldið á Broadway. Þegar almennri dagskrá lýkur mun vinsælasta hljómsveit landsins Sálin Hans Jóns Míns sjá um að skemmta okkur fram á nótt. Veislustjóri og önnur skemmtiatriði verða kynnt til sögunnar á næstu dögum. Þetta laugardagskvöld taka allir frá.