9 apr. 2008ÍR og Keflavík mætast öðru sinni í undanúrslitum Iceland Express deildar karla í kvöld klukkan 19:15. " Express Hringlið " verður á leiknum í kvöld og mun einn áhorfandi fá að spreyta sig. Ef viðkomandi nær að skora eftir hringlið á 24 sekúndum fær hann ferð til Evrópu með [v+]http://www.icelandexpress.is/[v-]Iceland Express[slod-] Borgar-Skotið verður einnig á sínum stað en í kvöld verður skotið upp á ferð til London. Vitað er til þess að fjölmennar stuðningssveitir munu fylgja báðum liðum og verður skrúðganga á leikinn frá hverfabækistöðinni(hjá Sorpu)við Jaðarsel að Seljaskóla. Á heimasíðum liðanna er heilmikil umfjöllun um leikinn í kvöld sem gaman er að lesa. [v+]http://www.ir-karfa.is/[v-]Heimasíða ÍR[slod-] [v+]http://www.keflavik.is/karfan/[v-]Heimasíða Keflavíkur[slod-]