5 apr. 2008Í kvöld er komið að stóru stundinni í háskólakörfuboltanum þegar " Hin Fjögur Fræknu " mæta til leiks. Í fyrsta sinn í sögunni eru fjórir skólar sem hófu leik númer eitt á sínu svæði komnir í " Final Four " Fyrri leikur kvöldsins er viðureign Memphis og UCLA og hefst leikurinn klukkan 22:07UCLA er í " Final Four " Seinni leikurinn er viðureign North Carolina og Kansas og hefst leikurinn klukkan 00:47. Roy Williams þjálfari North Carolina er þar að mæta sínum gamla skóla en hann þjálfaði Kansas í mörg ár áður en hann fór til North Carolina aftur því áður en hann þjálfaði Kansas var hann aðstoðarþjálfari Dean Smith hjá North Carolina. Á [v+]http://sports-ak.espn.go.com/ncb/index[v-]ESPN[slod-] er hægt að hlusta á og horfa á viðtöl við leikmenn og þjálfara allra skólanna sem og heyra hvað spekingar vestra segja um þá.