30 mar. 2008UCLA vann Xavier í 8-liða úrslitum og er þar með komið í hóp hinna fjögurra fræknu þriðja árið í röð. North Carolina tryggði sér einnig farseðilinn með sigri á Louisville. UCLA bar sigurorð af Xavier [v+]http://sports.espn.go.com/ncb/boxscore?gameId=284000046[v-]76:57[slod-]. UCLA mun mæta annað hvort Memphis eða Texas en þau leika í kvöld sunnudag klukkan 18:20. North Carolina vann Louisville [v+]http://scores.espn.go.com/ncb/boxscore?gameId=284000061[v-]83:73[slod-]. Tyler Hansbrough átti stórleik fyrir North Carolina en hann skoraði 28 stig og tók 13 fráköst. North Carolina mætir annað hvort Kansas eða Davidson en þau leika í kvöld sunnudag klukkan 21:05.