27 apr. 2007Körfuknattleikurinn er í mikilli sókn alls staðar í heiminum. Merki þess má sjá víða og ekki síst í [v+]http://www.nba.com/[v-]NBA deildinni[slod-]. Áður fyrr báru Bandaríkin höfuð og herðar yfir aðrar þjóðir í körfuknattleik. Bandaríska landsliðið sigraði alþjóðleg stórmót auðveldlega og NBA deildin var nær eingöngu skipuð Bandaríkjamönnum. Nú eru hins vegar breyttir tímar. Körfuboltinn hefur stigið stórt framfaraskref um allan heim og nú er svo komið að miklu fleiri þjóðir eiga öflug landslið en áður. Það sést vel á síðustu stórmótum. Argentínumenn urðu [v+]http://www.insidehoops.com/olympics.shtml[v-]Ólympíumeistarar[slod-] í Aþenu 2004 og Spánverjar urðu [v+]http://www.eurobasket.com/events/wc/wc10.asp?NewsNo=32[v-]heimsmeistarar [slod-]í Japan síðasta haust. Þessi þróun er greinileg í NBA deildinni. Þar hefur leikmönnum sem að fæddir eru utan Bandaríkjanna fjölgað gífurlega á síðustu árum. Frumkvöðlar eins og [v+]http://www.kki.is/tolfraedi_ferill_leikmanns.asp?Felaganumer=36827[v-]Pétur Guðmundsson[slod-], sem var fyrsti Evrópski leikmaðurinn til þess að leika í NBA, [v+]http://www.nba.com/history/players/petrovic_bio.html[v-]Drazen Petrovic[slod-] og [v+]http://www.nba.com/playerfile/detlef_schrempf/printable_player_files.html[v-]Detlef Schrempf[slod-] hjálpuðu til við að opna leikmannamarkaðinn í NBA deildinni. Í dag leika 85 "erlendir" leikmenn í NBA deildinni. Margir þeirra eru í hópi skærustu stjarna deildanna. John Hollinger hefur tekið saman áhugaverðan lista yfir [v+]http://sports.espn.go.com/nba/insider/columns/story?columnist=hollinger_john&page=All-World-30Best[v-]30 bestu[slod-] leikmenn NBA sem fæddir eru utan Bandaríkjanna. Þetta er skemmtileg lesning og gaman að sjá hversu margir góðir leikmenn eru þarna á ferð. Þarna á listanum er meðal annarra [v+]http://www.nba.com/playerfile/zaza_pachulia/index.html[v-]Zaza Pachulia[slod-] sem að mun væntanlega koma til Íslands núna í haust þegar íslenska landsliðið mætir landsliði Georgíu.