20 apr. 2007Nú þegar deildarkeppninni í NBA er lokið styttist í að mikilvægasti leikmaður tímabilsins verði valinn. Það er alltaf mikið rætt um þetta og körfuboltasérfræðingar hafa verið að velta þessu fyrir sér í allan vetur. Flestir eru á því að [v+]http://www.nba.com/playerfile/dirk_nowitzki/index.html[v-]Dirk Nowitzki[slod-] eða [v+]http://www.nba.com/playerfile/steve_nash/index.html[v-]Steve Nash[slod-] hljóti hnossið í ár en sitt sýnist þó hverjum. Steve Nash hefur leikið frábærlega í vetur en hann hefur unnið MVP titilinn síðustu tvö ár. Verði Nash valinn í ár kemst hann í góðan félagskap en aðeins [v+]http://www.nba.com/history/players/bird_bio.html[v-]Larry Bird[slod-] og [v+]http://www.nba.com/history/players/russell_bio.html[v-]Bill Russell[slod-] hafa fengið viðurkenninguna 3 ár í röð. Dirk Nowitzki hefur átt mjög gott tímabil og lið hans, Dallas Mavericks, voru með besta árangurinn í deildinni í vetur. Aðrir kappar hafa verið nefndir sem verðugir kandidatar og má þar nefna [v+]http://www.nba.com/playerfile/kobe_bryant/index.html[v-]Kobe Bryant[slod-], [v+]http://www.nba.com/playerfile/lebron_james/index.html[v-]Lebron James[slod-] og [v+]http://www.nba.com/playerfile/dwyane_wade/index.html[v-]Dwayne Wade[slod-]. Bill Simmons hefur sett saman áhugaverðan pistil þar sem hann stiklar á stóru yfir leikmenn deildarinnar. Hann setti saman lista þar sem hann byrjar á botninum og vinnur sig upp. Þetta er skemmtileg lesning þar sem ekkert er tekið of hátíðlega. [v+]http://sports.espn.go.com/espn/page2/story?page=simmons/070417[v-]Fyrri hluti pistilsins[slod-] [v+]http://sports.espn.go.com/espn/page2/story?page=simmons/070418&sportCat=nba[v-]Seinni hluti pistilsins[slod-]