17 apr. 2007Víkurfréttir hafa sett á heimasíðu sína íþróttaþátt sem að mestu er helgaður körfuknattleik. Þar má sjá góða umfjöllun um leik Keflavíkur og Hauka síðastliðinn laugardag þar sem að Haukar tryggðu sér Íslandsmeistaratitilinn. Einnig eru í þættinum tekin viðtöl við leikmenn og sýnt úr þriðja leik UMFN og KR sem að var leikinn í Njarðvík á laugardaginn. Á [v+]http://vf.is/[v-]vf.is[slod-] er einnig hægt að finna ljósmyndasafn úr þessum tveimur leikjum. Það er vissulega gaman að skoða þetta og eiga Víkurfréttir hrós skilið fyrir góða umfjöllun um körfuboltann.