13 apr. 2007Það er einn leikur á dagskrá í 2. deild kvenna í kvöld þegar Skallagrímur fær KR í heimsókn. Takist KR að sigra í þessum leik tryggja þær sér sigur í 2. deild kvenna og sæti í Iceland Express deildinni á næsta tímabili. KR komst í efsta sæti deildarinnar með því að sigra Fjölni í mikilvægum leik í síðustu umferð. KR-ingar eru með betra stigahlutfall í innbyrðis viðureignum við Fjölni sem að eru í 2. sæti deildarinnar. Skallagrímur er í 5. sæti deildarinnar. Hannes S. Jónsson, formaður KKÍ mun vera á leiknum í Borgarnesi í kvöld og mun hann afhenda verðlaun fyrir sigur í 2. deild kvenna takist KR að sigra leikinn. Það hefur verið töluverð spenna í 2. deild kvenna í vetur og eru margir á því að deildin hafi verið með sterkara móti og það á ári kvennakörfunnar.