19 mar. 2007Á þriðjudag fara fram tveir oddaleikir í úrslitakeppninni í Iceland Express deild karla. Leikur Skallagríms og Grindavíkur í Borgarnesi verður sýndur beint á sjónvarpsstöðinni Sýn. Leikurinn hefst klukkan 20:00. Hinn oddaleikurinn er leikur KR og ÍR í DHL höllinni. Sá leikur hefst klukkan 19:15.