6 mar. 2007Nú þegar línur eru farnar að skýrast í NBA deildinni eru sérfræðingar vestanhafs farnir að velta því fyrir sér hvaða leikmenn gætu verið valdir fyrstir í nýliðavalinu og hvaða möguleika liðin eiga á því að hreppa fyrsta valrétt. Sérfræðingar vefsíðunnar [v+]http://sports.espn.go.com/nba/index[v-]espn.com[slod-] hafa búið til forrit sem að virkar eins og lottóvél NBA deildarinnar. Vélin skapar hugsanlega möguleika á því hvernig nýliðavalið gæti farið í vor. Einnig sýnir forritið hvaða leikmenn eru líklegir til þess að verða valdir í hverju tilfelli fyrir sig. Hægt er að skoða þetta [v+]http://sports.espn.go.com/nba/draft2007/index[v-]hér[slod-].