28 jan. 2007Hamar/Selfoss og ÍR komust í kvöld í úrslit Lýsingarbikars karla. Hamar/Selfoss sigraði Keflavík í Hveragerði og ÍR lagði UMFG í Grindavík. Báðir leikirnir voru æsispennandi og það þurfti að framlengja í Grindavík. ÍR byrjaði leikinn betur en Grindvíkingar náðu að komast aftur inn í leikinn. Eftir venjulegan leiktíma var staðan 78-78 og því þurfti að framlengja. Í framlengingunni voru ÍR-ingar sterkari og náðu að tryggja sér sigurinn. [v+]http://www.kki.is/leikvarp_tolfraedi.asp?Leikur=1500002465_4_2[v-]Tölfræðin.[slod-] Í Hveragerði var einnig hörkuleikur en þar náði Hamar/Selfoss að bera sigurorð af Keflavík eftir spennandi leik. George Byrd og Bojan Bojovic voru stigahæstir hjá Hamri/Selfoss. Tölfræði leiksins má sjá [v+]http://www.kki.is/leikvarp_tolfraedi.asp?Leikur=1500002465_4_1[v-]hér[slod-]. Sagan hefur því endurtekið sig en árið 2001 mættust einmitt ÍR og Hamar í úrslitaleik bikarkeppninnar eftir að hafa sigrað UMFG og Keflavík í fjögurra liða úrslitum. Það verður mjög spennandi að fylgjast með því hvort að ÍR nái að endurtaka leikinn og sigra úrslitaleikinn í Höllinni 17. febrúar næstkomandi. Það vekur athygli að þjálfarar liðanna eru bræðurnir Jón Arnar Ingvarsson (ÍR) og Pétur Ingvarsson (Hamar/Selfoss).