18 jan. 2007Aganefnd hefur tekið fyrir kærur sem að bárust í vikunni á hendur Alexander Dungal, sem að leikur með Fsu og Jóhannesi Hannessyni sem að leikur með Brokey. Alexander Dungal hefur verið dæmdur í eins leiks bann vegna brottvísunar sem hann hlaut í leik Fsu gegn Ármanni/Þrótti í 1. deild karla. Jóhannes Hannesson hefur verið dæmdur í þriggja leikja bann vegna brottreksturs sem að hann hlaut í leik með Brokey gegn Haukum b í 2. deild karla. Úrskurðirnir taka gildi klukkan 12:00 á hádegi á morgun föstudaginn 19. janúar.