10 jan. 2007Búið er að velja leikmannahópa fyrir stjörnuleikina sem að leiknir verða næstkomandi laugardag. Þjálfarar liðanna völdu liðin sem að munu etja kappi um helgina. Hjá konunum skiptust þjálfararnir á að velja úr leikmönnum í Iceland Express deildinni en hjá körlunum var annars vegar valið úrvalslið íslenskra leikmanna en hins vegar úrvalslið erlendra leikmanna. Valið þar fór þannig fram að fjölmiðlamenn völdu fyrstu 7 leikmennina í hvort lið en þjálfararnir völdu svo 5 leikmenn til viðbótar. Leikir fara fram í DHL höllinni í Vesturbænum Hjá konunum mun Iceland Express liðið keppa gegn Shell liðinu og hefst leikurinn klukkan 14:00. Liðin eru skipuð eftirfarandi leikmönnum: Iceland Express liðið: Helena Sverrisdóttir, Haukar Tamara Bowie, UMFG María Ben Erlingsdóttir, Keflavík Latreece Bagley, Hamar Pálína Gunnlaugsdóttir, Haukar Kristrún Sigurjónsdóttir, Haukar Unnur Tara Jónsdóttir, Haukar Helga Jónasdóttir, ÍS Telma Fjalarsdóttir, Breiðablik Sigrún Sjöfn Ámundadóttir, Haukar Íris Sverrisdóttir, UMFG Ingibjörg Skúladóttir, Breiðablik Þjálfari: Ágúst Björgvinsson, Haukar Shell liðið: TaKesha Watson, Keflavík Ifeoma Okonkwo, Haukar Bryndís Guðmundsdóttir, Keflavík Birna Valgarðsdóttir, Keflavík Svava Stefánsdóttir, Keflavík Margrét Kara Sturludóttir, Keflavík Hildur Sigurðardóttir, UMFG Lovísa Guðmundsdóttir, ÍS Jovana Lilja Stefánsdóttir, UMFG Ragnheiður Theódórsdóttir, Breiðablik Þórunn Bjarnadóttir, ÍS Ingibjörg Jakobsdóttir, UMFG Þjálfari: Jón Halldór Eðvaldsson, Keflavík Hjá körlunum munu íslenskir leikmenn keppa gegn erlendum og hefst leikurinn klukkan 16:00. Liðin eru skipuð eftirfarandi leikmönnum: Íslenska liðið Fjölmiðlar völdu eftirtalda leikmenn: Brenton Birmingham, Njarðvík Friðrik Stefánsson, Njarðvík Magnús Þór Gunnarsson, Keflavík Páll Axel Vilbergsson, Grindavík Hlynur Bæringsson, Snæfell Sigurður Þorvaldsson, Snæfell Hörður Axel Vilhjálmsson, Fjölnir Friðrik, Brenton og Hlynur gáfu ekki kost á sér. Benedikt Guðmundsson þjálfari liðsins valdi því 8 leikmenn: Hreggviður Magnússon, ÍR Axel Kárason, Skallagrímur Pálmi Sigurgeirsson, KR Fannar Helgason, ÍR Jóhann Ólafsson, Njarðvík Pétur Már Sigurðsson, Skallagrímur Brynjar Björnsson, KR Egill Jónasson, Njarðvík Erlenda liðið Fjölmiðlar völdu eftirtalda leikmenn: Jeb Ivey, Njarðvík Steven Thomas, Grindavík Damon Bailey, Þór Þorlákshöfn George Byrd, Hamri /Selfoss Darrel Flake, Skallagrím Jovan Zdravevski, Skallagrím Nemanja Sovic, Fjölni Jovan og Flake gáfu ekki kost á sér. Einar Árni þjálfari liðsins valdi því 7 leikmenn: Lamar Karim, Tindastóli Kevin Sowell, Þór Akureyri Rob Hodgson, Þór Þorlákshöfn Roni Leimu, Haukum Justin Shouse, Snæfelli Kareem Johnson, Fjölni Nate Brown, ÍR