9 jan. 2007Í kvöld lýkur 8-liða úrslitum Lýsingarbikarkeppni karla með tveim leikjum. Í Seljaskóla má búast við hörkuleik þegar heimamenn taka á móti Skallagrímsmönnum. Þessi sömu lið áttust við í Iceland Express deildinni 29.des sl. og þá sigruðu ÍR með 13 stiga mun. Skallagrímsmenn eru mun ofar í deildinni en það er ekki alltaf spurt að því þegar um bikarleiki er að ræða. Á Selfossi tekur svo 1.deildarlið FSu á móti Keflvíkingum. Báðir leikir hefjast klukkan 19:15 Grindavík og Hamar/Selfoss eru þegar komin áfram í undanúrslit. Í Lýsingarbikar kvenna eru Hamar, Haukar, Grindavík og Keflavík komin í undanúrslit.