3 jan. 2007Mikil umferð körfuknattleiksdómara um skurðstofu Orkuhússins, að undanförnu, hefur vakið eftirtekt. Rögnvaldur Hreiðarsson, sem nýverið dæmdi sinn 1000. leik fyrir KKÍ, fór í speglun í dag vegna rifins liðþófa í hné. Gert er ráð fyrir að hann verði frá dómgæslu í a.m.k. fjórar vikur. Sigmundur Már Herbertsson, sem fór í speglun fyrir jól, fór aftur í gær til að láta spegla hitt hnéð. Í ljós kom að sá liðþófi var jafnvel enn verr farinn. Rögnvaldur og Sigmundur eru ekki einu dómararnir sem hafa farið í speglun á hné á liðnum mánuðum, því a.m.k. fjórir aðrir dómarar hafa þurft að undirgangast slíka aðgerð frá því í sumar. Einn er kominn af stað í úrvalsdeildinni á nýjan leik, tveir að komast af stað aftur og einn lagði flautuna á hilluna.