2 jan. 2007Dómaranefnd KKÍ mun halda dómaranámskeið helgina 13. og 14. janúar næstkomandi. Námskeiðið mun verða haldið á höfuðborgarsvæðinu. Eins og komið hefur fram áður þá er mikill skortur á dómurum og því mjög mikilvægt að fá sem flesta á námskeiðið. Frítt verður á námskeiðið. Áhugasamir eru beðnir um að skrá sig með því að senda tölvupóst á netfangið bjarni@fb.is.