20 des. 2006Á fimmtudag klukkan 19:15 verður í Ljónagryfjunni í Njarðvík viðureign Njarðvíkur og Keflavíkur. Þessi leikur er Iceland Express leikur umferðarinnar enda stórleikur þarna á ferð. Lagt verður mikið í alla umgjörð leiksins og mun Iceland Express leggja til 2 miða á einhvern af áfangastöðum sínum sem að áhorfendur munu eiga möguleika á að hreppa. Njarðvík og Keflavík eru eins og flestir vita stórlið í íslenskum körfuknattleik og eru liðin sem stendur hnífjöfn í 4 og 5 sæti Iceland Express deildarinnar með 14 stig. Þetta verður því mjög mikilvægur leikur fyrir bæði lið og sannkölluð körfuboltaveisla sem verður boðið uppá annað kvöld.