15 des. 2006Í kvöld fer Iceland Express deildin aftur af stað eftir leikjatörn í Lýsingarbikar. Nokkrir athyglisverðir leikir eru á dagskrá í kvöld og ber þar hæst grannaslagur Skallagríms og Snæfells. Skallagrímur getur með sigri komist á topp Iceland Express deildarinnar og setið þar yfir jólin í það minnsta. Þessi leikur er svokallaður Iceland Express leikur en eins og áður hefur komið fram fær hvert lið í Iceland Express deild karla og kvenna slíkan leik. Iceland Express gefur öllum liðum gjafabréf fyrir 2 sem gildir á alla áfangastað þeirra. Liðin ráða því á hvaða hátt þau nota gjafabréfið í tengslum við leikinn. Að auki tekur Iceland Express þátt í allri umgjörð á leiknum. Því má búast við mikilli skemmtun í Borgarnesi í kvöld. Aðrir leikir kvöldsins skipta ekki síður máli þar sem baráttan er hörð á öllum vígstöðvum. Í Grafarvogi taka heimamenn á móti Hamri/Selfossi í fjögurra stiga leik en þessi lið eru í mikilli baráttu um stöðu í deildinni. Það sama er hægt að segja um leik Þórs og ÍR sem fram fer í Þorlákshöfn, þar verður hart barist og von um jafnan leik. Í DHL höll KR inga taka heimamenn á móti Tindastólsmönnum en þessi lið eru nýbúin að kljást í Lýsingarbikar þar sem KR hafði betur. Tindastólsmenn eru í baráttu við að koma sér úr botnsætinu á meðan að KR er í mikilli baráttu að vera á toppnum í deildinni. Reyndar eru nokkur lið jöfn með 4 stig á botninum sem gerir þetta mjög spennandi. Allir leikir kvöldsins hefjast klukkan 19:15. 10.umferðin klárast svo á sunnudag með tveim leikjum en þá fá Haukamenn Njarðvíkinga í heimsókn. Í Keflavík mætast svo grannarnir Keflavík og Grindavík og má búast við hörkuslag eins og alltaf þegar þessi lið mætast. Báðir leikir hefjast klukkan 19:15