14 des. 2006Annað árið í röð stendur FIBA Europe fyrir kosningu á leikmönnum ársins hjá körlum, konum, ungum mönnum og ungum konum í Evrópu. Hópur blaðamanna, þjálfara og leikmanna um alla Evrópu munu senda inn sín atkvæði ásamt því sem að netverjar geta einnig sett sitt mark á kosninguna en seinna í mánuðinum gefst þeim þar með kostur á að velja sem mun hafa eitthvað vægi fyrir lokaniðurstöður. Sigurvegarar í hverjum flokki verða kynntir í byrjun janúar 2007. Skemmtilegar samantektir hjá nokkrum erlendum körfuboltaspekúlöntum eru að finna á heimasíðu [v+]http://www.fibaeurope.com[v-]FIBA Europe[slod-] og munum við á næstu dögum setja inn samantektir á þeim leikmönnum sem eru tilnefndir í íslenskri þýðingu svo allir geti lesið um þessar stjörnur Evrópska körfuboltans. Þeir sem heldur vilja lesa um þetta á ensku geta auðvitað farið á heimasíðu FIBA Europe.