10 des. 2006Mótið fer fram fimmtudaginn 28. og föstudaginn 29. desember 2006. Leikið verður í íþróttahúsi Kennaraháskólans. Leikið verður í fjórum þriggja liða riðlum á fimmtudeginum og úrslitakeppni fer fram á föstudeginum þar sem öll liðin leika a.m.k. einn leik. Aðeins 12 lið geta verið með að þessu sinni. Sigurvegarar fá bikar í verðlaun og auk þess verða gullverðlauna „peningar“ að vanda. Leikið verður að mestu eftir venjulegum körfuboltareglum, nema leikurinn verður 2 X 12 mínútur, og klukkan aðeins stöðvuð síðustu 2 mínúturnar í leiknum. Til að tefja leikinn sem minnst í vítaskotum verður aðeins tekið eitt skot, sem gildir 1, 2 eða 3 stig eftir atvikum. Mótið er eingöngu ætlað leikmönnum 20 ára og eldri og ekki heimilt að hafa leikmenn úr 1. deild eða Iceland Expressdeild í liðunum. Þátttökugjald er kr. 20.000.- fyrir hvert lið, sem greiðist í síðasta lagi fyrir fyrsta leik liðs. Innifalið í gjaldinu eru veitingar á fimmtudeginum. Greiða má í gegnum heimabanka inn á reikning: Banki: 0101 - 26 - 3909 kt. 581181 - 0279 Þátttökutilkynningar berist sem fyrst til undirritaðs. Með bestu kveðju Torfi Magnússon tm@fb.is Sími: 661 8012 Frétt tekin af heimasíðu Vals: www.valur.is