9 des. 2006Það er óhætt að segja að það ríki spenningur hjá körfuboltaáhugamönnum fyrir leik B liðs Keflavíkur og Grindavíkur í Lýsingarbikarnum sem fram fer á morgun sunnudag í Keflavík kl. 19:15. B lið Keflavíkur er nánast skipað þeim lekmönnum sem urðu Íslandsmeistarar 1989, 1992 og 1993 með hinu sigursæla Keflavíkurliði. Það verður gaman að sjá bakvarðatríóið Jón Kr Gíslason, Guðjón Skúlason og Fal Harðarson spila saman á ný. Baráttujaxlarnir Sigurður Ingimundarson og Albert Óskarsson verða einnig í liðinu sem og Jermaine Williams bandaríski leikmaðurinn sem spilar með Keflavík í Evrópukeppninni. Fleiri nöfn hafa heyrst en það hvílir leynd yfir þeim. Þó hefur nafn Hrannars Hólm verið nefnt.