2 des. 2006Leikur Þórs og Skallagríms sem háður verður í Þorlákshöfn sunnudaginn 3.desember kl. 19:15 verður Iceland Express leikur 9.umferðar. Eins og áður hefur komið fram þá velja liðin einn heimaleik þar sem Iceland Express styrkir sérstaklega viðkomandi leik. Í tilefni af Aðventubyrjun og því að kveikt er á jólatrénu stuttu fyrir leik hefur körfuknattleiksdeild Þórs í samstarfi við Iceland Express ákveðið að bjóða fólki í kakó og piparkökur upp í íþróttahúsi fyrir leikinn. Iceland Express hefur að auki ákveðið að styrkja þennan leik sérstaklega og hefur gefið gjafabréf fyrir tvo til einhvers áfangastaðar félagsins. Dregið verður í hálfleik úr seldum fullorðinsmiðum. Að auki verða lukkumiðar seldir sem kosta kr. 500,- og í lok þriðja leikhluta verður dregið úr seldum lukkumiðum. Í verðlaun er gjafabréf sem nemur helming af seldum lukkumiðum. Hugsanlega verða einhverjar fleiri uppákomur svo það má ljóst vera að mikil skemmtun verður í kringum þennan leik.