27 nóv. 2006FIBA Assist Magazine var nýlega með mjög góða umfjöllun um Sideline Sports og körfuboltaakademíu FSU. Í blaðinu er farið í gegnum helstu forrit Sideline fyrirtækisins og sagt frá hugmyndinni á bak við körfuboltaakademíuna. Sideline Sports hafa hannað forrit fyrir þjálfara til þess að hjálpa til við skipulagningu þjálfunar. Þeir hafa bætt við þennan hugbúnað og er fjallað um þessi forrit í blaðinu. Í dag eru öll forrit Sideline Sports opinber hugbúnaður hjá FIBA. Almennt er þetta mjög jákvæð umfjöllun og góð kynning fyrir Sideline Organizer og FSU. Hægt er að lesa meira [v+]http://www.fiba.com/asp_includes/download.asp?file_id=735[v-]hér[slod-].