21 nóv. 2006Síðastliðinn laugardag áttust við í 2. deild karla Höttur b og Þór Ak b, það er kannski ekki merkilegri leikur en hver annar en eitt er þó merkilegt við hann og það er að hann fór fram á Seyðisfirði. Þetta mun vera í fyrsta skipti sem opinber körfuboltaleikur fer fram á Seyðisfirði en ekki eru mörg ár síðan nýtt íþróttahús reis á staðnum. KKI.is náði tali af Pétri Böðvarssyni fyrrverandi leikmanni ÍR og seinna skólastjóra á Seyðisfirði og spurði hann út í sögu körfuboltans á Seyðisfirði. Hann sagði að allir leiki Hugins Seyðisfirði í gamla Austurlandsmótinu hafi verið leiknir á Norðfirði og Eskifirði þar sem ekki var nógu stórt íþróttahús á Seyðisfirði í þá daga en þetta var í kringum 1975. Eftir að nýja íþróttahúsið var reist náðist því miður ekki að endurreisa körfuboltann á staðnum. Þess má geta að Akureyringar sigruðu í leiknum á laugardag 63-55.