20 nóv. 2006Á þriðjudögum sýnir sjónvarpsstöðin Eurosport 2 frá Evrópukeppni í körfubolta og einnig frá spænsku deildinni. Dagurinn er nánast allur helgaður körfuknattleik. Á morgun hefst dagurinn á leik Joventut og Unicaja liðinu hans Pavel. Þetta er leikur úr 9. umferð sem fram fór sl. laugardag. Leikurinn er sýndur kl. 10:00 Klukkan 14:00 hefjast svo endursýningar á leikjum sem voru í beinni útsendingu sl. þriðjudag þar sem Crvena Zvezda frá Serbíu lék á móti Real Madrid Spáni og Snaidero Udine frá Ítalíu lek gegn Anwil Wloclawek frá Póllandi. Klukkan 16:00 hefst svo samantektarþáttur úr spænsku deildinni og þar strax á eftir er sýndur samantektarþáttur frá meistaradeild Evrópu. Klukkan 17:00 hefjast svo beinar útsendingar en sýndir verða 3 leikir beint. Fyrst er það viðureign Unics Kazan frá Rússlandi og Real Madrid frá Spáni þá næst Besiktas frá Tyrklandi og Anwil Wloclawek frá Póllandi, og síðasti leikurinn í beinni er leikur Siena frá Ítalíu og Lukoil Academic frá Búlgaríu. Í desert er svo upptaka af leik Lietuvos Rytas frá Litháen og Cran Canarias frá Spáni sem er liðið hans Harðar Axels Vilhjálmssonar. Sá leikur hefst kl. 22:45 Þetta er sannkölluð körfuboltaveisla og hvetjum við alla áhugamenn um fagrar íþróttir að horfa á og njóta þess besta sem boðið er upp á.