11 nóv. 2006Leik Ármanns/Þróttar og Hattar hefur verið frestað um óákveðinn tíma vegna ófærðar. Leikmenn Hattar hugðust koma til Reykjavíkur í dag og leika gegn Ármanni/Þrótti en fluginu þeirra var aftur aflýst vegna veðurs. Hattarmenn áttu að leika gegn Stjörnunni í gærkvöldi en þeim leik var einnig frestað.