10 nóv. 2006Um helgina fer fram í íþróttahúsinu að Varmá í Mosfellsbæ fjölliðamót í 10. flokki karla C riðill. Þetta er í fyrsta skipti sem fjölliðamót fer fram í Mosfellsbæ en fyrir um 10 árum tók Afturelding þátt í Íslandsmótum en þá fóru öll fjölliðamót fram í Klébergsskóla á Kjalarnesi. Það er mikill hugur í Mosfellingum að standa sig vel en 9. flokkur þeirra tók þátt í sínu fyrsta fjölliðamóti í Smáranum í lok október. Friðrik Garðar Sigurðsson þjálfar alla flokka Aftureldingar en körfuknattleiksdeildin var endurvakin fyrir um 3 árum og býður upp á æfingar fyrir drengi frá 6.-10. bekk og hefur fjölgað jafnt og þétt í hópnum. Það er ánægjulegt að sjá ný félög taka körfuboltann upp á sína arma og senda lið til leiks í Íslandsmóti, ekki síst í svo stóru bæjarfélagi sem Mosfellsbær er. [v+]http://www.isisport.is/isi/urslit/kki/2007/00002533.htm[v-]Leikjaplan mótsins[slod-]