9 nóv. 2006Eins og undanfarin ár mun körfuknattleiksdeild Fjölnis, í samvinnu við Hópbíla ehf., standa fyrir stórmóti fyrir yngstu iðkendur körfubolta þ.e.a.s. fyrir drengi fædda 1996 og síðar og stúlkur fæddar 1995 og síðar. Mótið verður haldið í Grafarvogi 2. og 3. desember næstkomandi. Þátttökugjald er kr. 10.000 á hvert félag og 3.500 kr. á hvern leikmann. Innifalið í þessu verði er gisting í Rimaskóla, ásamt kvöldverði, morgunverði og pizzuveislu. Einnig verður boðið uppá bíóferð, sund og kvöldvöku. Ekki verður keppt um sæti heldur verður leikgleðin látin ráða ríkjum og fá allir keppendur verðlaunapening að móti loknu. Þátttaka tilkynnist til Kristinns Jónssonar í síma 8995067 eða krj@fjolnir.is fyrir 10. nóvember n.k.